Wednesday, November 18, 2015

Dósasöfnun

Vegna eindreginna óska frá skólastjóra og foreldrum barna í Fossvogsskóla færum við dósasöfnunina til sunnudags.

Ágætu foreldrar!

Víkingur mun standa fyrir fjáröflun fyrir barna- og unglingastarf sunnudaginn 22. nóvember næstkomandi þegar safnað verður dósum.

Iðkendum í öllum flokkum í bæði fótbolta og handbolta, er ætlað að mæta ásamt foreldri. Miðum verður dreift á æfingum flokkanna til að tryggja enn frekar þátttöku barnanna í þessari söfnun. Yngri iðkendur (5.-7. flokkur) sjá um söfnunina en þeir elstu (3. og 4. flokki) annast flokkun. Mikilvægt er að fullorðinn komi með iðkanda til að hjálpa til og auðvelda flutning á dósunum.

Mæting til að fá úthlutað götum er kl. 10:15.

ÁFRAM VÍKINGU!
Barna- og unglingaráð í fótbolta og handbolta

No comments:

Post a Comment