Á foreldrafundinum um daginn gekk á milli skjal þar sem foreldrara gátu tekið að sér verkefni á N1 mótinu.
Það er mikilvægt að allir hjálpist að við að gera mótið sem best og skemmtilegast fyrir alla.
Hér er tengill að lifandi skjali þar sem fólk getur skráð sig sem liðsstjóra, á kvöldvaktir, næturvaktir, í sundferðir eða matarnefnd.
Margir hafa þegar skráð sig, en enn er óskipað í nokkur hlutverk.
Ekki er nauðsynlegt að foreldri frá hverju liði gisti í skólanum allar nætur, en æskilegt er að a.m.k. þrír foreldrar séu þar hverja nótt. Þá er nauðsynlegt að fulltrúi frá hverju liði sé til staðar á kvöldin og sjái til þess að gefa liðinu kvöldhressingu og koma þeim í ró.
Við hvetjum foreldra í hverju liði til að tala sig saman og skipuleggja sig fyrir mótið.
Lisbeth Borg og Þorgeir Jónsson verða fararstjórar hópsins.
Hér er svo skjalið:
https://docs.google.com/
Bestu kveðjur
Áslaug, Lisbeth og Þorgeir
No comments:
Post a Comment