Kæru foreldrar 5. flokks drengja.
Aðra helgina í maí, 8.-9. maí, verður haldið 7. flokks mót í Víkinni, Cheerios mótið. Þetta er mót sem barna- og unglingaráð stendur fyrir og er það í höndum 6. flokks kvenna og 5. flokks karla að sjá um veitingasölu og aðstoða við stæðamál á mótinu.
Börnin fá greitt fyrir það framlag sem frá þeim kemur. Þetta mót er stór fjáröflun fyrir yngri flokka starfið og því mikilvægt að við hjálpumst öll að því það skilar sér í betra starfi fyrir börnin okkar.
Um samstarf milli flokka er að ræða báða dagana og það þarf að útvega bæði veitingar og standa vaktina.
Þetta eru ekki nema ca. 5x3 tíma vaktir, fyrsta vakt hefst kl. 08:30 og seinustu vakt líkur um kl. 18, en við þurfum að fá ca. 6-7 fullorðna á hverja vakt.
Í fyrra skilaði þessi fjáröflun miklum tekjum fyrir flokkana sem var eyrnamerkt hverju barni.
Vinsamlegast opnið eftirfarandi lifandi Excel skjal: https://onedrive.live.com/ redir?page=view&resid= 7F2639DCB8B959E2!19661& authkey=!ALZs69VDvFKezY4
Og skráið ykkur á vakt og hvaða veitingar þið komið með, en hægt er að koma með skúffuköku, möffins, pönnukökur eða hafraklatta. (T.d. er hægt að finna góða uppskrift af hafraklöttum hér http://eldhussogur.com/2012/ 08/19/hafraklattar/)
Bestu kveðjur,
Lisbeth, Áslaug og Þorgeir
No comments:
Post a Comment