Laugardag 16. nóvember
Æfingaferð til Þorlákshafnar.
Við gistum þar eina nótt í grunnskólanum, förum í sund, tökum tvær fótboltaæfingar innanhús og leikum okkur.
Foreldrar sjá um akstur fram og tilbaka.
Mæting kl. 12.00 á laugardaginn í Víkina
þar verður gengið frá greiðslu og sameinað í bíla og haldið austur.
Það þarf að sækja drengina aftur á sunnudeginum kl.12.00 í grunnskólann.
Mikilvægt að hafa með:
Góðan svefnbúnað, dýnur, svefnpoka, kodda og allt slíkt.
Einnig innanhús æfingadót og skó, sundföt og auka fatnað.
Við göngum aðeins í kvöldmatinn þannig að betra er að vera með úlpu og hlífðarföt
No comments:
Post a Comment